Skólinn

Teikning af Fjólu og samnemendum hennar ásamt tveimur kennurum.

Grandaskóli við Keilugranda hóf starfsemi sína haustið 1986. Skólinn stendur við sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur. Í Grandaskóla er 1.-7. bekkur en 8.-10. bekkur er í Hagaskóla. Við skólann starfa um 35 kennarar og 17 aðrir starfsmenn.

Frístundaheimilið Undraland er við skólann, safnfrístundin Frostheimar er fyrir nemendur í 3.-4. bekk og félagsmiðstöðin Frosti er fyrir elstu nemendur skólans.

Stjórnendur

Skólastarfið

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Grandaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

  • Starfsáætlun 2024-2025

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Grandaskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

  • Skólanámskrá Grandaskóla

 

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Meginhlutverk skólaráðs að vera vettvangur fyrir alla fulltrúa skólasamfélagsins til að eiga samráð um málefni skólans.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn.

 

Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi.

 

Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Teikning af Fjólu á leið í skólann ásamt fleiri nemendum og foreldrum

Skólareglur

Í aðalnámskrá grunnskóla segir í kaflanum um skólabrag að nemendur þurfa að tileinka sér í daglegu lífi ýmsa þætti til þess að vera virkir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi þar á meðal samskiptahæfni, virðingu, umburðarlyndi auk skilnings á uppbyggingu lýðræðislegs þjóðfélags. Nemendur þurfa að læra að umgangast hvern annan og allt starfsfólk skóla í sátt og samlyndi, taka ábyrgð á eigin framkomu og hegðun og virða skólareglur.

Mat á skólastarfi

Markmið mats og eftirlits með gæðum starfsins er meðal annars að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.

Skólahverfi Grandaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það fer.

 

Barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. 

 

Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Grandaskóla.