Upplestrarkeppni 7. bekkjar 2026

8

 

Síðastliðinn mánudag var haldin Upplestrarkeppni 7. bekkjar innanhúss í sal skólans. Nemendum úr 4. og 6. bekk var boðið ásamt foreldrum/forsjáraðilum keppenda. Alls 10 nemendur tóku þátt og stóðu þau sig öll virkilega vel, var því úr vöndu að velja. Þau sem fóru með sigur af hólmi voru Baldur og Salka og til vara hún Harpa. Dómarar voru þær Guðrún Þóra Vilhjálmsdóttir, Gunnþóra H. Önundardóttir og Þuríður Þorláksdóttir. Á meðan dómarar réðu ráðum sínum stigu á stokk þeir Ágúst Þór Guðmundsson og Arnar Páll Viktorsson. Virkilega fallegur og vandaður flutningur hjá þeim.

1 2 3 4 5 6 8