Þemadagar um Barnasáttmálann

Börnin voru áhugasöm og iðin

 

Vel heppnaðir þemadagar um Barnasáttmálann

Í september voru haldnir þemadagar um Barnasáttmálann en þeir voru liður í innleiðingu okkar á Réttindaskóla UNICEF. Markmiðið var að gera Barnasáttmálann lifandi og áhugaverðan fyrir nemendum og dýpka skilning þeirra á réttindum barna um allan heim.  Hefðbundin stundaskrá var brotin upp í tvo  skóladaga. Til að efla samheldni og tengsl milli nemenda var þeim skipt í aldursblandaða hópa sem unnu að fjölbreyttum og skapandi verkefnum sem öll tengdust ákvæðum Barnasáttmálans með einum eða öðrum hætti.

Þemadagarnir heppnuðust vonum framar. Samvinnan í hópunum var til fyrirmyndar, þar sem eldri nemendur aðstoðuðu þá yngri og mikill áhugi og gleði einkenndi vinnuna. Afrakstur daganna varð að glæsilegum og fjölbreyttum verkefnum sem nú hafa verið hengd upp og prýða ganga skólans öllum til ánægju og fróðleiks.