Svakalega lestrarkeppnin 2026

GRA_SvakalegaLestrarkeppnin

Mánudag 21. september fengu nemendur Grandaskóla góða heimsókn.

Svakalega lestrarkeppnin

Nemendur Grandaskóla fengu góða heimsókn á mánudaginn í tengslum við þátttöku okkar í Svakalegu lestrarkeppninni. 

Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk um land allt en markmið hennar er að auka lestraránægju barna. Í keppninni skrá skólar niður hversu lengi nemendur lesa og senda tölur inn í lok keppninnar. Svakalegasti lestrarskóli landsins vinnur sér inn glæsileg bókaverðlaun. 

Í tengslum við Svakalegu lestrarkeppnina komu höfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rúr Þorgerisdóttir og ræddu við nemendur um hvernig bækur verða til.

Áfram Grandaskóli!