Svakaleg úrslit 2026

Svakaleg úrslit

 

Svakaleg úrslit 2026

Svakalega lestrarkeppnin stóð yfir í grunnskólum um allt land frá 15. september til 6. október og nú eru úrslitin komin á hreint. Grandaskóli var að taka þátt í keppninni í fyrsta skipti og stóðu nemendur sig með mikilli prýði, en samtals lásu þeir í 310.791 mínútu á þessum þremur vikum sem verður að teljast magnað afrek. Þýðir það að Grandaskóli hlýtur 9. sætið í keppninni í ár, með 920 mínútur lesnar á hvern nemanda. 

Til hamingju með árangurinn Grandaskóli!