Skertur nemendadagur og rafræn ráðstefna

Utis26

Skertur nemendadagur og Utís ráðstefna 18. september

Föstudag 18. september hefst einn stærsti menntaviðburður landsins, Utís Online. Viðburðurinn er tveggja daga rafræn ráðstefna með um 20 fyrirlestrum um skólaþróun og á annan tug innslaga í dagskrárlið sem heitir "Ferðalag um íslenskt skólakerfi".
 
Um 20 kennarar, stjórnendur og fagfólk Grandaskóla er skráð til þátttöku á viðburðinn sem hefst kl. 13:00 á föstudaginn. 
 
Við minnum á að föstudagurinn er skertur nemendadagur samkvæmt skóladagatali og kennslu lýkur kl. 12:30. 
 
Nemendur í 5. - 7. bekk fara heim að lokinni kennslu. Nemendur í 1. og 2. bekk fara í Undraland að loknum frímínútum kl. 13:00 og skráðir nemendur í 3. og 4. bekk fara í Frostheima.