Grandaskóli og innleiðing á Réttindaskóla og -frístund UNICEF

 UNICEF

 

Í Réttindaskóla og -frístund er unnið markvisst að einum af grunnþáttum íslenskrar menntunar, lýðræði og mannréttindum. Áhersla er lögð á barnaréttindafræðslu fyrir jafnt börn og fullorðna, og að börn séu virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Eitt af skrefum innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna felst í því að vinna aðgerðaáætlun fyrir hvern Réttindaskóla. Sú vinna fór fram í Grandaskóla skólaárið 2025-2026.  Aðgerðaáætlun hefur verið samþykkt af UNICEF og unnið er að framkvæmd hennar.

Aðgerðaráætlun Grandaskóla:  Aðgerðaáætlun Grandaskóla og Undralands

 Meiri upplýsingar um Réttindaskóla Unicefhttps://www.unicef.is/rettindaskoliogfristund (hlekkur)