Þemadagar

Dagana 4. og 5. júní eru þemadagar í Grandaskóla.
Á þemadögum er öllum bekkjum skipt upp eða blandað saman í minni hópa þar sem nemendur í 7. bekk eru hópastjórar. Verkefnin sem nemendur fá eru tengd Fjölgreindarkenningum sálfræðingsins Howards Gardners. Upphaflega voru greindirnar í kenningu hans sjö en síðar bætti hann við umhverfisgreind svo þá voru þær átta:
- Málgreind
- Rök- og stærðfræðigreind
- Rýmisgreind
- Líkams- og hreyfigreind
- Tónlistargreind
- Samskiptagreind
- Sjálfsþekkingargreind
- Umhverfisgreind
Eins og myndirnar lýsa best er alltaf gaman hjá okkur á þemadögum.








