Sýning í Árnastofnun

Í dag fóru nemendur í 6. bekk Grandaskóla á sýninguna Heimur í orðum
Heimur í orðum
Á sýningunni Heimur í orðum gafst okkur kostur á að sjá íslensku handritin. Þar eru fornar sögur og fræg kvæði en einnig ýmsir aðrir textar og handrit sem endurspegla fyrri tíma og samfélag. Eins og Árnastofnun lýsir sýningunni eru þetta helstu þættir:
"Áhersla er lögð á ríkulegt innihald handritanna, bæði texta og myndir, þar sem líf, dauði, tilfinningar og trú, völd og heiður koma við sögu. Fjallað er um erlend áhrif á íslenska menningu á miðöldum og um íslenska tungu en einnig hvaða spor íslenskar fornbókmenntir hafa markað í útlöndum."
Flott sýning í nýju og flottu húsi. Sambland af nútímatækni og góðri sýningahönnun gerir gömul handrit meira áhugaverð fyrir yngri aldurshópa. Við getum vissulega mælt með þessari sýningu fyrir alla sem hafa áhuga á sögu og menningu okkar þjóðar.




