2.bekkur á Þingvöllum

1

Þriðjudaginn 27. maí fóru börnin í 2. bekk í heimsókn á Þingvelli í tengslum við vinnu með bókina Komdu og skoðaðu land og þjóð.

Á Þingvöllum fengu nemendur leiðsögn um svæðið og fræddust meðal annars um Almannagjá, Lögberg og Peningagjá. Fræðslan var lifandi og skemmtileg og börnin fóru meðal annars í reipitog þar sem annað liðið var Evrasíuflekinn og hitt N-Ameríkuflekinn. Eftir að hafa gengið um svæðið fengu börnin frjálsan tíma til að leika. Þá kíkti Guðni, fyrrverandi forseti Íslands, óvænt á þau og vakti það mikla lukku að fá að spjalla við hann. Þetta var frábær dagur, veðrið lék við okkur og börnin voru áhugasöm og stóðu sig vel. 

1 2