Vorhátíð Grandaskóla
Nú stendur yfir undirbúningur fyrir vorhátíð í Grandaskóla. Nemendur í 6. og 7. bekk settu upp leikritið Töfrabókina að þessu sinni. Töfrabókin er metnaðarfull sýning þar sem handrit, leikmynd, auglýsingar, leikskrá, búningar, tónlistar- og leikflutningur er meðal verkefna nemenda. Vorhátíðin er fimmtudaginn 21. maí og hefst dagskrá kl. 16:00. Þá býður foreldrafélagið upp á snarkandi heitar pylsur af grillinu og sumarleiki á skólalóðinni.