Reykjaferð 7. bekkjar
Reykjaferð 7. bekkjar
Morguninn 7. september fóru nemendur 7. bekkjar Grandaskóla í rútu á leið á Reyki í Hrútafirði. Mikil stemning var í rútunni og það var ljóst að allir voru spenntir. Það var sungið, spilað á spil, teknar myndir og allskonar skemmtilegt gert. Það var líka spjallað og mörgum fannst það ekkert smá skemmtilegt að fara í gegnum Hvalfjarðargöngin. Rútuferðin tók að minnsta kosti einn og hálfan klukkutíma.
Þegar við komum á Reyki þá fengum við frábærar móttökur þegar starfsmaður kom í rútuna og sagði okkur hvert við ættum að fara. Það var heppilegt að Grandaskóli gisti í sömu byggingu og matsalurinn er í, sem gerði okkur auðvelt fyrir að fara í mat. Það voru allskonar hlutir til að gera í Bjarnaborg, einni byggingunni, á morgnana eftir morgunmat. Eftir 20 mínútur af frjálsum leik var komið að námskeiðum og þau voru allskonar, traust, leikir, sögur og margt fleira.
Við komum á mánudegi og strax sama dag var sundpartý, sem var mjög skemmtilegt. Það voru froðuvélar og vatnsbyssur, heitir pottar og músík. Það var algjört vibe og eftir það fóru sum í náttúrulaugina og sjóinn, þar sem sum fundu fyrir marglyttum í sjónum. Þriðjudaginn 8. september áttu þrír krakkar afmæli, ein stelpa og tveir strákar. Stelpan er í Grandaskóla og það er undirrituð, Urður Vala, en nöfnin á strákunum man ég því miður ekki. Þann dag var kvöldvaka og þar voru allskonar keppnir, meðal annars hæfileikakeppni. Þar var allskonar gert í henni, til dæmis dansað og sungið.
Á miðvikudeginum var tískukeppni og fullt af krökkum voru að gera sig til, stelpur voru að gera til stráka, strkákar að gera til stelpur og sumir að gera sig sjálfa til. Í keppninni voru varla áhorfendur því það voru svo magir að keppa. Auðvitað þurfti samt að kjósa á milli allra þessa gella, gæja og prinsessa. Það gat þó bara verið einn sigurvegari. Sá sem vann var strákur sem var kallaður Prins hafsins og hann var með fullt af þara í buxunum og var með klikkaða andlitsmálningu. Eftir keppnina fórum við öll í matsalinn og sigurvegarinn ásamt höfundum atriðsins fengu fyrst að fá Prins póló og CapriSun og síðan fengu allir aðrir. Næsta dag, fimmtudag, var komið að því að pakka. Við fengum samt auðvitað morgunmat og þau sem pökkuðu snemma fengu frjálsa stund í Bjarnaborg á meðan hinir voru að pakka. Eftir það var kveðjustund.
Allir voru að tala um Reyki á leiðinni heim og ég verð bara að segja fyrir okkur öll að þetta er ein ógleymanlegasta ferð lífs okkar. Ef við mættum fara aftur þá myndum við pottþétt gera það.
Urður Vala Freysdóttir Bachmann 7. SRD