Menningartenglar Grandaskóla
Menningartenglar Grandaskóla
Grandaskóli hefur eignast tvo flotta menningartengla úr hópi nemenda 7. bekkjar. Menningartenglar skólans eru þau Freyr Tumi Erikson og Urður Vala Freysdóttir Bachmann. Þau mynda ásamt Hörpu Rún myndmenntakennara menningarráð Grandaskóla. Menningarráðið sótti ráðstefnu um menningartengla í Salnum Kópavogi þar sem m.a. var fjallað um það hvernig þau geta haft áhrif á aðgengi nemenda að listviðburðum og menningu borgarinnar.
Menningartenglar Grandaskóla tóku á móti og kynntu Ævar rithöfund, leikara og vísindamann á svið í heimsókn hans þann 4. nóvember.