Heimsókn frá Ævari vísindamanni

Ævar rithöfundur, leikari og vísindamaður í heimsókn

 

Heimsókn frá Ævari vísindamanni

Miðvikudaginn 4. nóvember kom rithöfundurinn, leikarinn og vísindamaðurinn Ævar Þór Benediktsson í heimsókn. Ævar sagði krökkunum í 4. – 7. bekk lítillega frá sér og öllum sínum bókum sem eru nú orðnar 42 talsins. Þá las hann upp úr nýjustu bókinni sem ber nafnið Teiknimyndaránið, en hún er uppfull af húmor, spennu og súrsíld! Ævari var afar vel tekið og voru krakkarnir algjörlega til fyrirmyndar.

Takk fyrir skemmtilega heimsókn Ævar!