Felix Bergsson í heimsókn
Felix Bergsson í heimsókn
Föstudaginn 25. september 2026 kom gæðablóðið Felix Bergsson í heimsókn og hvatti okkur áfram í Svakalegu lestrarkeppninni.
Felix las upp úr nýrri bók sinni um Ævintýri Freyju og Frikka, en í september kemur út ný barnabók eftir hann sem er ætluð 6-12 ára krökkum. Sagan heitir Leynifélag í lífsháska og er æsispennandi ævintýri með húmor og samfélagslegri skírskotun. Bókina prýða myndir eftir Kára Gunnarsson.
Í lokin söng Felix tvö lög og skemmti bæði börnum og fullorðnum.
Takk fyrir lestrarhvetjandi heimsókn.