Vorhátíð 2025

Vorhátíð Grandaskóla var haldin fimmtudaginn 22. maí. Þar gafst foreldrum tækifæri á að sjá verkefni nemenda, hlusta á tónleika og að sjálfsögðu fá pylsu með öllu. Þetta er mikilvægur þáttur í skólastarfinu og alltaf mikið fjör. Við vorum ekki eins heppin með veður og dagana á undan en þetta slapp allt til.








