Listaverk 4. og 6. bekk

Veðrið hefur leikið við okkur sem og aðra landsmenn seinustu daga. Það er varla hægt að vera inni í svona veðri og þess vegna eru allir möguleikar til náms utandyra notaðir.
Nemendur í 6. bekk nýttu sér náttúruna og teiknuðu vormyndir í sólinni. Afraksturinn má sjá á vorhátíð skólans næstkomandi fimmtudag.


Börnin í 4. bekk nutu einnig veðurblíðunnar og bjuggu til útilistaverk með krítum. Þar nýttu nemendur vel það sem þeir hafa lært í myndmennt og eru kannski verðandi listamenn.


