Fjöruverk

Börnin í 5. bekk bjuggu til sameiginlegt listaverk á gangi skólans á fjörudögum, þar sem blandað var saman listsköpun og fræðslu. Börnunum var skipt upp í 3 hópa. Hópur 1 vann saman við að mála bakgrunn af fjöru á MDF plötu. Hópur 2 aflaði upplýsinga um lífið í fjörunni og teiknaði myndir af náttúrunni sem notaðar voru í miðgrunn og forgrunn. Hópur 3 fór í fjöruna og safnaði skeljum og steinum til að líma í myndina, sem gerði hana hana þrívíðari. Flott verkefni með góðri blöndu af samvinnu, fræðslu og sköpun.