Jólaföndur í Grandaskóla 24. og 25. nóvember
Kæru foreldrar og forsjáraðilar barna í Grandaskóla,
Foreldrafélag Grandaskóla býður nemendum og fjölskyldum þeirra til notalegrar jólastundar í íþróttasal Grandaskóla þar sem við föndrum saman fyrir jólin!
Tímasetningar:
1.-3. bekkur: Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:00-18:30
4.-7. bekkur: Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00-18:30
Það er að sjálfsögðu öllum frjálst að mæta það kvöld sem hentar best, óháð bekkjardeild, og systkini eru hjartanlega velkomin!
Mikilvægt - pöntun á jólaskrauti
Panta þarf og greiða fyrir jólaskrautið fyrirfram, í síðasta lagi 20. nóvember.
Pöntun og greiðsla fara fram hér: https://forms.gle/YMuiPc7aeuJd9i5K7
Léttar veitingar verða einnig til sölu á staðnum.
Jólaföndrið er ein helsta fjáröflun foreldrafélagsins og því er þátttaka ykkar okkur afar mikilvæg. Við vonumst til að sjá sem flest ykkar og eiga saman notalega stund í aðdraganda jólanna. Þetta er skemmtilegt tækifæri fyrir börnin til að skapa góðar minningar og fyrir okkur foreldrana að hittast, spjalla og kynnast betur.
Hér má finna Facebook-viðburðinn: https://fb.me/e/4zSLaeKZL
Við hlökkum mikið til að sjá ykkur og eiga saman skemmtilega jólastund!
Jólakveðjur,
Stjórn Foreldrafélags Grandaskóla