Að þreyja þorrann
Þorrinn er fjórði mánuður vetrar og hefst á föstudegi á bilinu 19. til 25. janúar.
Við hjá Grandaskóla höldum í menningu þorra með því að bjóða upp á þorramat í mötuneyti okkar. Í gær var veisla þegar þorramatur var í boði fyrir nemendur og starfsfólk. Okkur kemur alltaf á óvart hvað margir eru til í að smakka súrmat og hákarl þó það sé kannski ekki algengur matur á þeirra heimili. Margir fóru þó bara beina leið í grjónagraut og vildu ekkert fá sér sviðakjamma. Hvað sem börnin borða eða ekki var þetta góður dagur með skemmtilegri umræðu um gamla tíma á Íslandi.